Fréttir

Dick Hnífar

Dick Hnífar

Hnífa og áhöld frá Friedrich Dick þarf vart að kynna fyrir íslensku fagfólki í matvælageiranum, sem í daglegu tali eru kallaðir Dick hnífar og áhöld. Til fróðleiks má geta þess að það var Johann Friedrich Dick sem stofnaði félagið árið 1778 í borg hnífanna Solingen í Þýskalandi. Vörurnar frá Dick vekja ætíð hrifningu meðal viðskiptavina enda með háan gæðastaðal, virka vöruþróun og alhliða þjónustu. Svo er ávallt jákvætt þegar hagstætt verð og gæði fara saman. Dick velur aðeins reynda samstarfsaðila og Samhentir eru því afar stoltir að vera í þeim hópi sem umboðsaðilinn á Íslandi. Dick leggur áherslu á þjálfun fyrir bæði sölumenn sína og viðskiptavini. Jafnframt vinnur Dick stöðugt að rannsóknum og þróun verkefna á alþjóðlegum vettvangi. Til gamans má segja frá því að BBQ kóngurinn og The Icelandic Butcher nota eingöngu Dick áhöld ásamt mörgum öðrum í matvælageiranum. Að þessu sögðu er óhætt að segja að Samhentir séu stoltir umboðsmenn Dick á Íslandi. Kæri viðskiptavinur ekki hika við að leita ráða hjá sölumönnum Samhentra gagnvart Dick hnífum og áhöldum, sem og öðrum umbúðum. Samhentir => sala@samhentir.is Þjónusta – Gæði – Áreiðanleiki.


Verðhækkanir í farvatninu sökum breyttra aðstæðna á hrávörumörkuðum

Líkt og við þekkjum öll þá hafa síðastliðnu 12 mánuðir verið uppfullir af áskorunum sem hafa haft mikil áhrif á okkar daglega líf og rekstur. Í gegnum þessar áskoranir þá höfum við einblínt á að útvega umbúðir á eins hagkvæman hátt og við teljum okkur fært og er það áfram okkar markmið. Með þessari tilkynningu viljum við því upplýsa þig um þá þróun sem er að verða á okkar mörkuðum svo þú hafir færi á því að bregðast við sé þess þörf:


Starfið eftir að samhentir keyptu hlut af Kassagerð Reykjavíkur



Tónleikar 18.12

Tónleikar í boði Samhentra, smellið hér til að nálgast þá. Jólaball í hjarta Hafnarfjarðar. Tónleikarnir hefjast kl 2030.


VERSLUNIN OPIN AÐ NÝJU

Frá og með mánudeginum 14. desember verður verslun Samhentra í Suðurhrauni 4A í Garðabæ opin frá klukkan 08:00 – 16:00. Við biðlum til viðskiptavina að virða 2 metra fjarlægð og grímuskyldu. Stöndum saman og látum hlutina ganga upp, við erum öll sóttvarnir.


Samhentir loka afgreiðslu úr versluninni tímabundið vegna Covid. Hafið samband beint við sölufulltrúa.

Verslun Samhentra eru lokuð sökum Covid-aðstæðna. Sölufulltrúar okkar vinna að heiman og eru við símann. Vonum að við mætum skilningi á þessari aðlögun okkar og leggjum okkur fram við að láta hlutina ganga upp. Öll afgreiðsla verður óbreytt. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum á netfangið sala@samhentir.is eða 575-8000 Verum ábyrg og munum að við erum öll sóttvarnir.


Breyttur opnunartími í sumar

Ágætu viðskiptavinir. Í sumar frá og með 1. júní til og með 31. ágúst verða Samhentir og Vörumerking opin frá 08:00 til 16:00


Verslunin opin að nýju

Aftur hefur verið opnað í verslun Samhentra í Suðurhrauni. Verið velkomin.


Samhentir loka afgreiðslu úr versluninni tímabundið af öryggisástæðum. Hafið samband beint við sölufulltrúa.

Samhentir hafa ákveðið að laga verslun sinni að breyttum aðstæðum sem nú eru og sinna henni alfarið í gegnum netþjónustu. Við munum áfram geta afgreitt vörur að undangengnum samskiptum á netinu. Vonum að við mætum skilningi á þessari aðlögun okkar og leggjum okkur fram við að láta hlutina ganga upp. Öll afgreiðsla verður óbreytt. Ýttu á hlekkinn að ofan til að sjá helstu leiðirnar að okkur:


Verðhækkun vegna gengisbreytinga

Vegna veikingar íslensku krónunnar og hækkana á öðrum aðföngum verða hækkanir á verðum hjá Samhentum frá og með 19 mars. Verðhækkanir eru í takt við breytingu á gengi íslensku krónunnar síðustu tvær vikurnar og eru gerðar með þeim fyrirvara um endurskoðun eftir þróun gengis á næstu misserum, hvort sem að verður til styrkingar eða veikingar. Þessi aðgerð er því miður óumflýjanleg en við sjáum okkur ekki fært annað en að bregðast við þeim aðstæðum sem komnar eru upp á heimsvísu.

Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánundag til fimmtudags 8:00-16:00 og föstudaga 8:00-15:00