Miklar gæðakröfur eru gerðar til matvælaumbúða. Umbúðirnar skulu m.a. uppfylla skilyrði um hreinlæti og styrk og að þær innihaldi ekki eiturefni.
Til að fá vottorð Samhentra fyrir hinar ýmsu vörur er best að hafa samband við sölufulltrúa eða gæðastjóra sem sendir nýjustu útgáfur sem í gildi eru hverju sinni.
Í vottorðunum er vitnað í alþjóðlegar reglugerðir og vottanir okkar birgja. Tekið er fram ef varan er hæf fyrir matvælaframleiðslu og ýmislegt annað sem hentar fyrir mismunandi efni.
Samhentir stefna á fullgildingu BRC gæðastaðals fyrir fyrirtæki í framleiðslu umbúða fyrir matvælaiðnað og er ferlið í fullum gangi.
Samhentir stefna á fullgildingu BRC gæðastaðals fyrir fyrirtæki í framleiðslu umbúða fyrir matvælaiðnað og er ferlið í fullum gangi.