Starfsmenn fyrirtækisins eru tæplega 60 talsins. Flestir hafa starfað lengi hjá Samhentum og VGÍ. Meðalaldur starfsmanna er 45 ár sem gefur til kynna að reynsla starfsmanna sé umtalsverð. Hjá fyrirtækinu starfar fólk með þekkingu úr þeim geirum sem helstu viðskiptavinir Samhentra starfa í. Starfsmenn hafa komið að stofnun og rekstri framleiðslufyrirtækja bæði í matvælaframleiðslu og öðrum iðnaði. Hér starfa einnig fyrrum sjómenn, heildsalar, kjötiðnaðarmenn, fjármála- og bókhaldsfólk, vélstjórar, gæðastjórar, knattspyrnuþjálfari og dómari. Mannauður fyrirtækisins er því mikill og fjölbreyttur.