Starfsemi Samhentra hófst í kringum sjávarútveginn og allt frá upphafi hefur þjónusta við sjávarútvegsfyrirtæki verið okkar sérþekking. Samhentir búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á þörfum sjávarútvegsins sem endurspeglast í vöruframboði á hverjum tíma fyrir sig.
Þjónusta - Gæði - Áræðanleiki
Helstu vörur fyrir sjávarútveginn
Kassar
Við bjóðum upp á fjölbreytta framleiðslu fyrir allar sjávarafurðir. Kassar fyrir ferskan-, blokkfrystan-, lausfrystan- og uppsjávarfisk færðu hjá okkur.
Vaxbornar öskjur fyrir sjávarútveg
Vaxbornar öskjur í ýmsum stærðum; 2kg, 6kg, 7kg, 9kg ásamt 16,5lbs blokkaröskjunni. Fylgdarhlutir eins og álrammar, einfaldur botn og undirplata fyrir tvöfaldan álramma.
100% endurvinnanlegir og óbrjótanlegir kassar fyrir ferskan fisk, framleiddir úr polypropylene (PP) plastbylgju sem veitir einangrunina. Sérstaklega hagkvæmir í öllum flutningi, fyrirferðarlítið í aðflutningi og geymslu. Mun meiri nýting í útflutningi frá því sem áður þekkist. Getum sniðið Coolseal kassa fullkomlega að þínum þörfum.