Skilmálar, vottanir og vafrakökur

Viðskiptaskilmálar, sérpantanir, tilboð, vafrakökur, stefnur, vottanir, gæðakröfur og svo ótal margt fleira.

Skilmálar

Söluskilmálar

Söluskilmálar eiga við um tilboð og pantanir sem gerðar eru hjá okkur. Sérstök frávik frá söluskilmálum eru einungis gild með skriflegu samþykki seljenda.

Öll tilboð sem Samhentir afhenda skal fara með sem trúnaðarmál milli Samhentra og viðskiptavinar. Samhentir leitaðst við að svara tilboðum sem fyrst. Öll tilboð eru gerð með fyrirvara um breytingu á gengiskráningu gjaldmiðla, innflutningsgjöldum, tollum eða öðrum þáttum verðlags og miðast ætið við gengi þess dags sem vara er reiknisfærð.

Tilboðsverð eru með fyrirvara miða við ofangreindar forsendur. Staðfesta skal öll tilboð með tölvupósti eða undirskrift sinni á tilboðsblaði.

Söluskilmálar

Sérpantanir og sérframleiðsla
Almenn regla er að viðskiptavinur greiðir inn á pöntunina áður hún er sett í gang.

Afturköllun pantana
Staðfest pöntun má eingöngu breyta eða afturkalla með skriflegu samþykki samhentra.

Söluverð
Samhentir áskila sér söluveð í seldum vörum til tryggingar fullnaðargreiðslu, skv. 35 gr. laga nr. 75/1997 um sammingsveð.

Ófyrirséðir atburðir
Samhentir og/ eða framleiðandi geta neyðst til að afturkalla hvaða pöntun sem er eða breyta einhverjum þáttum hennar. ástæður þess geta t.d verði vegna skorts á vinnuafli eða hráefni, vegna flutningsaðila, verkfalla, vinnubanns, órfiðar, hamfara, lagasetninga eða annarra óviðráðanlegra atburða.

Skilmálar

Viðskiptaskilmálar

Samhentir selur vörur í verslun sinni, Suðurhrauni 4A, 210 Garðabær, sem og í vefverslunsinni á www.samhentir.is. Samhentir er í eigu Samhentir Kassagerð hf., kt. 560196-2299, Suðurhrauni 4A, 210 Garðabæ. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Samhentra annars vegar og kaupanda vara (einnig vísað til sem „viðskiptavinur“ og „notandi“).

Viðskiptavinur (eða "kaupandi") er sá einstaklingur sem kaupir vöru í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Viðskiptavinur getur líka verið fyrirtæki, og eiga þá við lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Um viðskipti í vefverslun Samhentra gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016. Um viðskiptin í vefverslun gilda einnig lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Ofangreind lög gilda um réttarstöðu viðskiptavinar og seljanda þegar sérstökum ákvæðum þessara viðskipta.

Skilmálar þessir eiga við um kaup á vöru í verslun og/eða í vefverslun Samhentir eftir því sem við á hverju sinni. Með því að samþykkja skilmála þessa staðfestir viðskiptavinur að hann er upplýstur um rétt sinn og skyldur við kaup á vöru hjá Samhentir. Frávik frá þessum skilmálum telst ekki samþykkt nema með undirritun seljanda.

Samhentir áskilur sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum sé þess þörf, og taka breytingarnar þá gildi við birtingu uppfærðra skilmála á vefsíðu Samhentir. Ef um verulegar breytingar er að ræða mun Samhentir birta sýnilega tilkynningu þess efnis á vefsíðu sinni.

Pantanir, tilboð, sérpantanir, vöruskil og fleira

Pantanir og afhending
Öll tilboð sem Samhentir afhendir skal fara með sem trúnaðarmál milli Samhentra og viðskipavinar.

Tilboð
Samhentir leitast við að svara tilboðum sem fyrst. Öll tilboð eru gerð með fyrirvara umbreytingar á gengisskráningu gjaldmiðla, innflutningsgjöldum, tollum eða öðrum þáttum verðlags og miðast ætíð við gengi þess dags. sem vara er reikningsfærð. Tilboðsverð eru því með fyrirvara um ofangreindar forsendur.

Staðfesting pantana
Viðskiptavinur getur lagt inn pöntun á vörum í gegnum vefverslun Samhentra eða með því að hafa samband við söludeild. Pantanir eru staðfestar með staðfestingarpósti til viðskiptavinar þegar greiðsla hefur verið móttekin, eða samkvæmt sérstökum samning ef um er að ræða fyrirtækjaviðskipti.

Staðfesting tilboða
Taki viðskiptavinur tilboði skal hann ávallt staðfesta það með tölvupósti eða með undirskrift sinni á tilboðsblaði.

Afhendingartími
Afhendingartími getur verið breytilegur eftir vöruframboði, en Samhentir mun leitast við að afhenda vörur eins fljótt og unnt er. Ef tafir verða á afhendingu mun Samhentir upplýsa viðskiptavin eins fljótt og hægt er.

Sérpantanir og sérframleiðsla:

Almenn regla er að viðskiptavinur greiðir inn á pöntunina áður hún er sett í gang.

Skilareglur
Viðskiptavinir hafa 14 daga skilarétt samkvæmt lögum um neytendakaup. Vörumskal skila í upprunalegu ástandi og órofnum, heilum, þurrum og hreinum ytri umbúðum. Sýna skal fram á órofna kælikeðju í vörslu kaupanda ef um kæli eða frystivöru er að ræða. Viðskiptavinur ber kostnað af sendingu nema um gallaða vöru sé að ræða. Ef vara er gölluð hefur viðskiptavinur rétt á að fá nýja vöru eða endurgreiðslu.

Afturköllun pantana:
Staðfestri pöntun má eingöngu breyta eða afturkalla með skriflegu samþykki Samhentra.

Söluverð:
Samhentir áskilja sér söluveð í seldum vörum til tryggingar fullnaðargreiðslu, skv. 35 gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð.

Ófyrirséðir atburðir:
Samhentir og/eða framleiðandi geta neyðst til að afturkalla hvaða pöntun sem er eða breyta einhverjum þáttum hennar. Ástæður þess geta t.d. verið vegna skorts á vinnuafli eða hráefni, vegna flutningsaðila, verkfalla, vinnubanns, ófriðar, hamfara, lagasetninga eða annarra óviðráðanlegra atburða.

Gæðakröfur og vottorð

Miklar gæðakröfur eru gerðar til matvælaumbúða. Umbúðir skulu ávalt uppfylla skilyrði um hreinlæti og styrk og að þær innihaldi ekki eiturefni.

Í vottorðunum er vitnað í alþjóðlegar reglugerðir og vottanir okkar birgja. Þar er einnig tekið fram að varan sé hæf fyrir matvælaframleiðslu og ýmislegt annað.

Við stefnum á fullgildingu BRC gæðastaðals fyrir fyrirtæki í framleiðslu umbúða fyrir matvælaiðnað og er það ferli í fullum gangi. Hægt er að nálgast allar nýjustu vottanir með því að senda fyrirspurn á sala@samhentir.is.

Vafrakökustefna

Þessi vefsíða notar vafrakökur til þess að tryggja sem besta upplifun af síðunni fyrir notendur. Vafrakökur má flokka í fernt; nauðsynlegar, frammistöðu- og virkniauðgandi, tölfræðilegar og markaðssetning.

Vafrakökur eru upplýsingapakkar, sem netvafrar vista að beiðni vefþjóna. Þegar vafrinn seinna biður sama vefþjón um vefsíðu er kakan send til þjónsins með beiðninni. Vefþjónninn getur þá notað þessar upplýsingar frá vafranum til frekari vinnslu. Kökur geyma oft upplýsingar um stillingar notanda, tölfræði heimsókna, auðkenni innskráðra notanda o.fl. Kökur eru einnig oft nauðsynlegar til að geta boðið upp á ýmsa virkni og koma í veg fyrir árásir tölvuþrjóta. Vafrinn eyðir kökunni þegar líftími hennar rennur út. Hver kaka er bundin við þann vefþjón sem sendi kökuna og aðeins sá vefþjónn fær að sjá kökuna.
Ef þú ert ekki ánægð/ur með notkun á einhverjum kökum á vefsíðunni getur þú lokað á þær eða eytt úr vafranum þínum. Gerir þú slíkt getur það hamlað virkni vefsíðunnar.